Sandfok úr Kambinum til vandræða

kambur01
Mynd: Landgræðslan

Í gær var efnt til fundar í Þorlákshöfn um Kambinn, sjávarkambinn milli Óseyrarbrúar og Þorlákshafnar. Í hálfa öld hafa milljónir rúmmetra af sandi fokið upp úr fjörunni og bundist í melgrasinu við ströndina með þeirri afleiðingu að Kamburinn hefur hækkað um tugi metra. Þessi kambur er einstök náttúrusmíð hér á landi og þó víðar væri leitað. Það er Landgræðsla ríkissins sem greinir frá.

kambur03
Mynd: Landgræðslan

Á liðnum árum hafa myndast skörð í Kambinn og sandurinn á greiða leið í gegnum þau. Vindstyrkur í þessum skörðum er oft gríðarlega mikill. Ef svo fer sem horfir munu skörðin stækka og þar með eykst sandfok á þjóðveginum og ljóst er að vandamál munu koma upp vegna raflínu sem er á Kambinum. Aukinn sandburður frá ströndinni sem fýkur yfir Kambinn mun valda miklum vanda á golfvellinum sem er í næsta nágrenni. Melgrasið á erfitt með að skjóta rótum efst í Kambinum og hamla því að sandurinn berist ekki inn á landið – og nóg er af honum á ströndinni.

Fundinn sátu fulltrúar Landgræðslunnar, Vegagerðarinnar og landeigenda auk starfsmanna sveitarfélagsins Ölfuss og fulltrúa úr bæjarstjórn og bæjarráði.

kambur02
Mynd: Landgræðslan

Á fundinum var rætt um hvaða leiðir eru færar til að koma í veg fyrir að sandurinn geri þann óskunda sem að framan er lýst. Ákveðið var að stofna samráðshóp hlutaðeigandi aðila til að vinna í málinu.

Í framsögu Sveins Runólfssonar, landgræðslustjóra, kom fram það mat að hagsmunaaðilar þyrftu að gera með sér formlegt samkomulag og semja áætlun um þau verk sem þarf að vinna næstu árin. Landgræðslustjóri sagði að verkaskipting þyrfti að vera skýr og forræði Kambsins í föstum skorðum svo unnt væri að friða hann fyrir umferð vélknúinna tækja og hestaumferð utan afmarkaðra slóða.