Lokað fyrir neysluvatn á nokkrum bæjum í Ölfusi

vatn01Tilkynning frá vatnsveitunni Berglindi. Í dag, þriðjudaginn 23. júní, kl. 13:00 – 16:00 verður lokað fyrir neysluvatnið í eftirtöldum bæjum í Ölfusinu vegna viðgerðar á vatnslögn:

  • Kotströnd I og II
  • Mæri
  • Ásnesi
  • Rauðalæk
  • Kross
  • Lind
  • Friðarminni
  • Gljúfurárholt
  • Völlum (Eldhestar)
  • Grásteini I og II
  • Gljúfurárholtsbyggð (Klettagljúfur og Hellugljúfur)
  • Og að sumarhúsum á þessu svæði.

Íbúar eru beðnir að gæta þess að skilja ekki eftir opna krana til að sem minnst loft komist inn á kerfið, gangi viðgerðin hraðar fyrir sig verður hleypt fyrr á aftur.

Nánari upplýsingar veitir Össur Emil Friðgeirsson, verkstjóri Þjónustumiðstöðvar Sveitarfélagsins Ölfus í síma 862-0920 líka er hægt að senda tölvupóst á ossur@olfus.is.