Jarðskjálftar gætu fundist í byggð

Ölfus - heiðiOrkuveitan, sveitarstjórnir og lögreglustjórinn á Suðurlandi ásamt almannavarnadeild ríkislögreglustjóra  vilja vekja athygli á að loka þarf fyrir niðurdælingu í Húsmúlasvæði við Hellisheiðarvirkjun vegna vinnu við lagnakerfi virkjunarinnar.

Niðurdæling í svæðið mun hefjast aftur í síðasta lagi á fimmtudagsmorgun 20 ágúst. Vegna þessara aðgerða telja vísindamenn að tímabundið séu auknar líkur á að jarðskjálftar verði á niðurdælingarsvæðinu og gætu þeir náð þeirri stærð að finnist í byggð.

Unnið er eftir verklagi sem miðar að því að lágmarka hættu á óþægindum segir í tilkynningu frá almannavörnum.