Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Lista- og menningarsjóði Ölfuss

dólusSveitarfélagið Ölfuss auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Lista- og menningarsjóði Ölfuss. Markmið sjóðsins eru:

  • að efla hverskonar menningarstarfsemi, list og listiðnað í Sveitarfélaginu.
  • að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði menningarmála er tengjast Sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.

Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á bæjarskrifstofu Ölfuss, Bæjarbókasafni og á vef sveitarfélagsins Ölfuss. Í umsókn skulu markmið verkefnis og áætlanir um framkvæmd þeirra vera skýrar auk þess sem sýnt skal fram á að styrkurinn sé líklegur til að efla menningarstarfsemi í Sveitarfélaginu.

Upplýsingar um reglur Lista- og menningarsjóðs Sveitarfélagsins Ölfuss eru að finna á vef sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2015.

Umsóknir sendist á Bæjarbókasafn Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn, merkt „Lista- og menningarsjóður Ölfuss“ eða með netpósti á netfangið barbara@olfus.is.