Nýárstónleikar LÞ og partý á laugardaginn

ludrasveit_harpa2014-21Lúðrasveit Þorlákshafnar ætlar að fagna nýju ári með tveimur viðburðum núna á laugardaginn í Ráðhúsi Ölfuss.

Sveitin ætlar að blása til nýárstónleika í Ráðhúsi Þorlákshafnar þann 9.janúar kl. 17.00. Þetta er í fjórða sinn sem LÞ heldur slíka tónleika og má því segja að þetta sé orðið að hefð hjá sveitinni.

Á boðstólnum verður fjölbreytt tónlist, allt frá klassískum vínartónum yfir í eðal poppsyrpur sem allir ættu að kannast við. Söng og leikkonan Anna Margrét Káradóttir ætlar að syngja undurfagurt eins og henni einni er lagið og svo verða óvænt atriði.

sverrir_halldor01Seinna sama kvöld verður sveitin með partý í Ráðhúsinu þar sem Halldór Gunnar Pálsson Fjallabræðrastjórnandi og söngvarinn Sverrir Bergmann munu sjá til þess að allir verði í stuði fram eftir nóttu. Húsið opnar kl. 23.00.

Miðaverð á Nýárstónleikana er 2.500 kr. og fer miðasala fram á Kompunni, hársnyrtistofu. Verðið í kvöldpartýið er 2.000 kr. en ef fólk vill miða á báða viðburði þá kostar það saman 4.000 kr.