Ólína Þorleifsdóttir nýr aðstoðarskólastjóri

ÓlínaÞorlákshafnarbúinn Ólína Þorleifsdóttir hefur verið ráðin sem nýr aðstoðarskólastjóri í Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Fjórir einstaklingar sóttu um stöðuna og eftir matsferli var ákveðið að ráða hana í starfið.

Ólína er öllum hnútum kunn í grunnskólanum en hún starfar í dag fyrir Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings en hún starfaði sem kennari í skólanum fyrir nokkrum árum. Ólína hefur einnig reynslu sem aðstoðarskólastjóri en hún sinnti þeirri stöðu í Kópavogsskóla áður en hún hóf störf hjá Skóla- og velferðarþjónustunni.

Ólína tekur við af Jóni H. Sigurmundssyni sem lætur af störfum eftir þetta skólaár.

Eftirfarandi einstaklingar sóttu um stöðuna:

  • Hulda Kristjánsdóttir
  • Íris Anna Steinarrsdóttir
  • Katrín Ósk Þráinsdóttir
  • Ólína Þorleifsdóttir