Stór dagur fyrir Þorlákshöfn og Suðurland

Í dag hófust beinar siglingar færeyska skipafélagsins Smyril Line Cargo milli Íslands og Evrópu en vöruflutningaferjan Mykines kom með fyrsta farminn frá Rotterdam til Þorlákshafnar á öðrum tímanum í dag.

Í tilefni þessara miklu tímamóta stóð almenningi til boða að skoða ferjuna og nýttu margir sér þetta tækifæri.

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í höfninni vegna komu ferjunnar og er þess vænst að siglingarnar stuðli að enn frekari vexti og atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Með siglingaleiðinni milli Rotterdam og Þorlákshafnar stóreykur Smyril Line Cargo þjónustu sína við íslenska markaðinn, ekki síst suðvesturhorn landsins, og hafa bókanir farið vel af stað. „Viðbrögðin hafa verið framar okkar björtustu vonum. Það er strax mikil eftirspurn eftir flutningum á bílum og stórum tækjum og vinnuvélum til landsins, ásamt allskyns bygginga- og neytendavörum. Útflutningurinn fer líka mjög vel af stað en þar er farmurinn mestmegnis fiskur,“ segir Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi.

Um Mykinesið
Ferjan Mykines er 19 þúsund tonn, ríflega 138 metra löng og tæplega 23 metra breið og getur hún flutt 90 tengivagna og 500 bíla í hverri ferð. Hún var smíðuð árið 1996 í UMOE skipasmíðastöðinni í Noregi og var m.a. áður í siglingum á Eystrasaltinu. Ferjan er skráð í Færeyjum og eru 24 í áhöfn.