Leikfélag Ölfuss sýnir Blessað barnalán – Uppselt á frumsýningu

Leikfélag Ölfuss frumsýnir leikritið Blessað barnalán í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar á fimmtudaginn í Versölum.

Blessað barnalán fjallar um Þorgerði gömlu sem á fimm uppkomin börn en gamla konan þráir ekkert heitar að öll börnin komi saman á æskuheimilinu þar sem hún býr enn ásamt Ingu einni af dætrunum. Mæðgurnar plana sumarfríið og eiga von á að öll systkinin snúi heim til að njóta austfirsku sumarblíðunnar með þeim. En hvað gerist þegar systkinin afboða komu sína hvert af öðru? Jú, Inga grípur til sinna ráða, arkar uppá símstöð og sendir skeyti: „mamma er dáin – komið strax – Inga“. Atburðarásin sem fer af stað í kjölfar skeytisins er hreint óborganleg og óhætt að lofa því að magavöðvarnir fái ærlega hreyfingu.

Leikarar sýningarinnar ery Helena Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Róbert Karl Ingimundarson, Aðalsteinn Jóhannesson, Ingólfur Arnarson, Erla Dan Jónsdóttir, Jóhanna Hafdís Leifsdóttir, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir, Kristín Svanhildur Helgadóttir, Kolbrún Dóra Snorradóttir, Ragnhildur Ýr Gunnarsdóttir og Árný Leifsdóttir.

Þetta er í fjórða skipti sem Gunnar Björn leikstýrir hjá Leikfélagi Ölfuss en áður hefur hann sett upp verkin Blúndur og blásýra, Maður í mislitum sokkum og Himnaríki.

Uppselt er á frumsýninguna á fimmtudaginn en eftirfarandi eru sýningardagar verksins. Miðasala er í síma 692 0939 (Rakel) eða 776 1301 (Guðrún).

  • 12. október – frumsýning – UPPSELT
  • 15. október – 2. sýning
  • 17. október – 3. sýning
  • 31. október – 4. sýning