Uppselt á leik Þórs og Vals

Eins og fjallað hefur verið um kom upp hópsmit í Þorlákshöfn í byrjun þessarar viku. Snemma lá fyrir að smitið næði meðal annars inn í grunnskólann. Sveitarfélagið Ölfus brást hratt við og beindi því til bæjarbúa að skipta niður í fyrsta gír og vera í hægagangi út vikuna. Aðdáun hefur vakið hversu vel bæjarbúar brugðust við og standa vonir nú til að samstaðan hafi komið í veg fyrir frekari útbreiðslu.

Eins og allir vita er Þorlákshöfn körfuboltabær. Lið Þórs er eitt af þeim allra sterkustu hér á landi og að mörgu leyti slær hjarta bæjarins í takt við liðið. Til stóð að strákarnir okkar myndu mæta Val í kvöld en vegna óvissu með smit var leiknum frestað til föstudags.

Sveitarfélagið Ölfus hefur nú komist að samkomulagi um að sveitarfélagið kaupi alla miða á leikinn og bjóði þess í stað öllum aðdáendum liðsins að fylgjast með honum í gegnum beina útsendingu á Youtube.

Í viðtali við Hafnarfréttir sagði Grétar Ingi Erlendsson, formaður bæjarráðs, að með þessu vildi sveitarfélagið sýna bæjarbúum þakklæti fyrir samstöðuna og liðinu stuðning í baráttunni. „Ég hef lengi vitað hversu magnað þetta samfélag okkar hér í Þorlákshöfn er og hef alltaf verið stoltur Þorlákshafnarbúi. Þessi vika hefur samt komið mér á óvart. Það hafa allir lagst á eitt í að kæfa niður útbreiðslu á smiti sem hér kom upp og ég er sannfærður um árangur þessara aðgerða. Við erum öll búin að vera í fysta gír en ég veit að strákarnir okkar setja svo í fluggír þegar þeir mæta Val. Það er ekkert nema gaman fyrir okkur að geta boðið bæjarbúum og velunnurum liðsins að fylgjast með honum í beinni útsendingu.“

Leikur liðanna hefst kl. 18:15 á morgun föstudag og verður í beinni útsendingu á Youtuberás Þórs Þorlákshafnar.