Opinn fundur Íbúalistans með Oddnýju G. Harðardóttur

Íbúalistinn í Ölfusi stendur fyrir opnum fundi með Oddnýju G. Harðardóttur laugardaginn 30. maí kl. 15 í félagsheimili hestamanna í Þorlákshöfn.

Á fundinum ætlum að horfa til ársins 2032 og sjá fyrir okkur framþróun á Suðurlandi. Hvar liggja tækifærin?

Ykkur er öllum boðið að koma og taka þátt í samtalinu við þingmann okkar Sunnlendinga.
Kaffi og kruðerí í boði og að sjálfsögðu eru frambjóðendur Íbúalistans á staðnum og meira en tilbúnir til að ræða stefnumál að fundi loknum.

Þið eruð öll hjartanlega velkomin!

Viðburðurinn er liður í fundaröð Íbúalistans. Nú þegar hefur Íbúalistinn tekið á móti Þorgerði Katrínu þingkonu Viðreisnar og Sönnu Magdalenu, borgarfulltrúa Sósíalista í Reykjavík.

Framundan er fundur með Daníel E. Arnarsyni, varaþingmanni Vinstri grænna og fyrrum Þorlákshafnarbúa.