Fjölskyldufjör Íbúalistans

Íbúalistinn býður fjölskyldum í Sveitarfélaginu Ölfusi að koma og eiga saman skemmtilega stund í og við félagsheimili hestamanna í Þorlákshöfn sunnudaginn 1. maí.

Við hefjum leika kl. 12 og bjóðum upp á grillaðar pylsur. Það verður nóg um að vera til kl. 14 fyrir börnin

🍀Hestar, teymt undir hjá börnum

🌼Andlitsmálning

🌸Segulkubbar

🌺Trékubbar

🌻Hoppukastali

Börnin mega endilega koma í búning!

Gleðjumst saman 1. maí

Öll velkomin!