Dagskráin um sjómannadagshelgina í Þorlákshöfn

Það verður líf og fjör um helgina í Þorlákshöfn í tilefni Sjómannadagsins á sunnudaginn. Björgunarsveitin Mannbjörg hefur undanfarið unnið að skipulagningu dagskrár fyrir Sjómannadagshelgina.

Dagskráin er vegleg og ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. Dagskrána má sjá hér fyrir neðan:

Laugardagur 11. júní

11-14Dagskrá á bryggju

  • Dorgveiði
  • Hoppað í sjóinn
  • Mannbjörg býður börnunum í bátsferð á Draupni
  • Kassaklifur
  • Karfan með pylsur

12-18Kolaports stemmari í Ráðhúsinu

  • Heimafólk með ýmislegt til sölu
  • Kaffi, vöfflur með rjóma og eitthvað til að narta í
  • Candyfloss (500 kr)

12-18Hoppukastalar í skrúðgarðinum

Sunnudagur 12. júní

11-14Dagskrá í sundlauginni

  • Koddaslagur (allur aldur)
  • Fatasundskeppni
  • Reipitog (skorum á hópa af 4 manns að skrá sig, skráning fer fram á mannbjorg@gmail.com)

12-18Hoppukastalar í skrúðgarðinum

15-18 – Árlegt kaffihlaðborð björgunarsveitarinnar í Ráðhúsinu (2500 kr 18 ára og eldri, 1500 kr 12-17 ára og frítt fyrir 11 ára og yngri)

15-18Fjör í skrúðgarðinum

  • Strumparnir, unglingadeild björgunarsveitarinnar sér um ratleik fyrir 10 ára og yngri.
  • Candyfloss (500 kr)