Það má með sanni segja að Hafnardagar hafi farið af stað með látum. Eftir setningu hátíðarinnar í Ráðhúskaffi og í næsta sal til hliðar steig á stokk Djassband Suðurlands. Hljómsveitin spilaði gamla soul og motown sveiflu slagara og gerðu það með eindæmum vel. Mikil stemning var á sviðinu sem smitaðist svona líka vel í áhorfendur […]Lesa meira
Í dag er fyrsti dagur nýs bæjarfrétta vefmiðils í Þorlákshöfn. Ákveðið var að notast við hið sögulega nafn Hafnarfréttir, en okkur þótti nafnið henta vefsíðunni einkar vel. Fyrir margt löngu síðan var gefið út mánaðarlegt bæjarblað í Þorlákshöfn sem bar sama nafn eins og líklega margir muna eftir. Enn þann dag í dag má sjá […]Lesa meira
Nú er komið að þeirri helgi sem bæjarbúar hafa beðið eftir óþreyjufullir í langan tíma. Hafnardagar eru að hefjast með allri sinni dýrð. Setningarathöfn Hafnardaga verður á morgun fimmtudaginn 30.maí klukkan 20:00 í Ráðhúsi Ölfuss þar sem meðal annars verða menningarverðlaun Ölfuss veitt. Í kvöld frá klukkan 19-21 verður svaka sundlaugarpartý fyrir krakka 10-13 ára, […]Lesa meira
Þórsarar hafa fengið til liðs við sig tvo nýja leikmenn fyrir komandi keppnistímabil í körfubolta. Leikmennirnir sem um ræðir eru Tómas Heiðar Tómasson 21 árs leikstjórnandi frá Fjölni og Ragnar Ágúst Nathanaelsson 21 árs miðherji kemur frá vinum okkar í Hamar. Það má með sanni segja að þetta séu „stór“ tíðindi því ekki eru þetta […]Lesa meira
Djassband Suðurlands verða með tónleika á fimmtudaginn í Versölum á Hafnardögum. Hljómsveitin mun spila þekkta stuð tónlist í Soul og Motown sveiflu. Meðlimir DBS eru Stebbi Þorleifs, Robbi Dan, Stefán Ingimar, Bessi, Kristín Arna, Árni og Bryndís. Með þeim á þessum tónleikum munu síðan frændurnir og nafnarnir, Jón Óskar og Jón Óskar, leika með þeim á […]Lesa meira
Nýr bæjarstjóri, Gunnsteinn R. Ómarsson tók til starfa þann 15.maí síðastliðinn í Ölfusi. Gunnsteinn hefur mikla reynslu af stjórnunarstörfum, en hann gegndi stöðu bæjarstjóra í Rangárþingi Ytra áður en hann var ráðinn til starfa sem bæjarstjóri í Ölfusi. Eins og kunnugt er lét Ólafur Örn Ólafsson af störfum sem bæjarstjóri á dögunum af persónulegum ástæðum, […]Lesa meira
Sýning Róberts Karls Ingimundarsonar er enn í fullum gangi en á nýjum stað undir stiganum í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn. Þema sýningarinnar eru myndir frá Hafnardögum 2012 og því ekki úr vegi að koma sér í Hafnardaga gírinn með því að skoða stemninguna á hátíðinni frá því í fyrra. Sýningin verður í gangi að minnsta kosti út […]Lesa meira
Eins og flest öllum er orðið kunnugt um, þá er hið árlega sjómannadagsball Ægis haldið í Ráðhúskaffi á laugardaginn. Að þessu sinni eru það félagarnir Rúnar og Grétar sem ætla að trylla dansgólfið og sjá til þess að allir dilli sér út nóttina. Húsið opnar klukkan 23:00 og það kostar litlar 1.500 krónur inn. Aldurstakmark […]Lesa meira