Sveitarfélagið Ölfus er barnvænt samfélag og hefur þannig skuldbundið sig til að vinna markvisst eftir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í allri stefnumótun og þjónustu. Það þýðir að við leggjum áherslu á að allt starf sveitarfélagsins hafi það að leiðarljósi sem er barninu fyrir bestu. Þetta gildir líka í skipulagsmálum, við veljum staðsetningu nýrra hverfa og heimila með það í huga að börnin njóti góðs af.
Á undanförnum árum hefur mikið verið byggt af nýjum heimilum í Þorlákshöfn og fjölmargar barnafjölskyldur hafa flutt hingað. Íbúum hefur fjölgað um 30% á átta árum og því fylgja áskoranir fyrir okkur. Á þessum tíma hefur meðalaldur íbúa lækkað hratt. Það sést best á því að hlutfall eldri borgara í okkar sveitarfélagi er rétt um 10% sem er um 26% lægra en landsmeðaltal. Samfélagið okkar er ungt og kröftugt.
Það er ekki tilviljun. Þegar við höfum byggt upp samfélagið höfum við markvisst tryggt að innviðirnir styðji við þarfir barna og fjölskyldna. Sjálfgefið var að fjölga leikskólaplássum, bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla, hækka tómstundastyrki og fleira. Meira þurfti þó til. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að skipulag nýrra heimila sé gert með hagsmuni barna í forgrunni. Barnasáttmálinn er ekki skraut, hann nær til allra þátta í starfi okkar. Líka til skipulagsmála.
Við í Þorlákshöfn höfum frá upphafi sýnt framsýni í skipulagi bæjarins. Þjónustuásinn, sem liggur frá íþróttahúsinu að bæjarskrifstofunum, hýsir stærstan hluta þeirrar þjónustu sem börnin okkar sækja. Þar má finna sundlaugina, grunnskólann, fótboltavöllinn, frjálsíþróttaaðstöðuna, fimleikahúsið, bókasafnið og margt fleira. Öll ný heimili sem hafa verið skipulögð síðustu ár eru innan við 1,3 km frá þessum þjónustuási.

Myndin sýnir hvernig áhersla hefur verið lögð á að velja heimilum barna stað sem næst þjónustuásnum
Það er mikill kostur fyrir börnin að eiga allt þetta í næsta nágrenni. Ekki hvað síst þegar horft er til þess að áfram hefur verið lögð áhersla á gott aðgengi að ríkri náttúru, opnum svæðum, torgum og öðru slíku sem eykur lífsgæði íbúa.
Þegar kemur að skipulagi er eðlilegt að sjónarmið séu ólík. Áskoranir eru margar og sitt sýnist hverjum. Það er auðvelt og sjálfgefið að bera virðingu fyrir öllum skoðunum. Stundum vaknar spurningin hvort ekki sé tímabært að horfa til vesturs með frekari byggð, í átt að fiskeldinu og Lýsi, eða jafnvel yfir Suðurstrandarveginn. Sá tími gæti vissulega komið, en við sem nú förum með ferðina í þessum málum höfum fyrst og fremst talið mikilvægt að nýta þá einstöku möguleika sem við höfum í dag: að bjóða börnum heimili í göngufæri við alla helstu þjónustu.
En búum við svo vel að geta boðið börnum framtíðarinnar þau forréttindi að ganga í skólann, fara á æfingar, tónlistarnám og aðra uppbyggilega afþreyingu, allt sem auðgar lífið og stuðlar að þroska þeirra. Það er ástæða til að vera stolt. Því í Ölfusi eru börnin alltaf í fyrirrúmi.
Grétar Ingi Erlendsson
Formaður bæjarráðs og frambjóðandi D lista.

