Það er ótrúlegt að það séu komin fjögur ár frá því að við stofnuðum Íbúalistann og ákváðum að bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í Ölfusi. Það var virkilega lærdómsríkt ferli. Ástæðan fyrir því að við ákváðum að bjóða fram var sú að það var margt í stjórnun sveitarfélagsins sem okkur fannst á vondri leið, samráðsleysi í tengslum við stórar ákvarðanir og sundrung sem var að byrja að byggjast upp.
Mitt fyrsta verk eftir kosningar var að hringja í oddvita Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi, flokks sem hlaut aftur hreinan meirihluta, og biðja hann um að hlúa betur að samstarfi við minnihlutann. Á sínu fyrra kjörtímabili í meirihluta var slíkt samstarf í skötulíki.
Á tímabilunum á undan, þegar Sjálfstæðisflokkurinn sat sjálfur í minnihluta, var sveitarfélagið rekið af öðrum meirihluta undir forystu Gunnsteins R. Ómarssonar. Þá var samstarfið þvert á listana í fyrirrúmi: minnihlutinn sat við borðið á undirbúningsfundum, var vel innvinklaður í helstu verkefni og fékk að koma á framfæri sjónarmiðum sem höfð voru til hliðsjónar.
Það er skemmst frá því að segja að það var enginn áhugi á að vera í góðu samstarfi við minnihlutann, ekki nema ef við værum bara sammála. Í raun var óvirðingin fyrir mér, kjörnum fulltrúa, slík að ráðinn bæjarstjóri meðal annarra, réðst ítrekað að mér með orðum á bæjarstjórnarfundum og í eitt skiptið svo alvarlega að hann bókaði gegn minni persónu. Slík bókun er nokkuð sem á sér engin fordæmi á Íslandi, segir mér fróðara fólk en hann sakaði mig um trúnaðarbrest að ósekju. Ráðnir bæjarstjórar bóka yfirleitt ekki í eigin nafni og hvað þá gegn persónu kjörins fulltrúa, sem viðkomandi vinnur jú fyrir því þannig virkar það. Kjörnir fulltrúar, sem íbúar velja til þess að vinna fyrir sig, eiga að taka ákvarðanir um sveitarfélagið sem bæjarstjórum er svo falið að vinna eftir, ekki öfugt.
Hver var ástæðan fyrir þessari illsku? Jú hún var sú að ég var að standa vörð um hagsmuni íbúa í máli sem átti að lauma í gegnum stjórnsýsluna á forsendum stórfyrirtækis án þess að upplýsa íbúa um þau gríðarlegu áhrif sem starfsemin myndi hafa á okkar nærumhverfi.
Það skiptir máli hver stjórnar
Þessi reynsla sýndi mér að það skiptir mjög miklu máli hver stjórnar. Mín upplifun var sú að það ágæta fólk sem hefur setið í meirihlutanum fyrir Sjálfstæðisflokkinn á því kjörtímabili sem nú er að ljúka hafi ekki endilega fylgt sinni eigin sannfæringu. Hvorki þegar kemur að þeim vinnubrögðum sem hafa verið viðhöfð né í mörgum þeirra mála sem unnið hefur verið að. Höfum það samt á hreinu, fulltrúar í meirihluta voru fullir þátttakendur í að reyna að bæla niður eðlilegar gagnrýnisraddir kjörinna fulltrúa í þessu stóra máli Heidelberg, eins og sjá má í þessari fundargerð, en ég get ekki ímyndað mér að þeim líði vel með það í dag.
Samvinna og vönduð vinnubrögð skipta öllu máli
Það vita það allir sem reynt hafa að gott samstarf gerir alla vinnu bæði skemmtilegri og betri. Þar sem ólík sjónarmið eru rædd, metin og vegin og komist er að sameiginlegri niðurstöðu þegar hægt er. Það er betra fyrir fólkið sem er að taka ákvarðanirnar og ekki síður fyrir alla íbúana sem eru að treysta á að fólkið sem það kaus taki bestu mögulegu ákvarðanirnar fyrir samfélagið.
Samfylkingin og félagar í Ölfusi átta sig á gildi samvinnu. Samvinnu við kjörna fulltrúa, við starfsfólk sveitarfélagsins, við íbúa sveitarfélagsins, við unga fólkið, eldri borgara, við nágrannasveitarfélög, atvinnulífið og við ríkisvaldið.
Á lista Samfylkingarinnar og félaga er virkilega reynslumikið fólk
Gunnsteinn R. Ómarsson, oddviti listans var bæjarstjóri í Ölfusi á árunum 2013-2018, á þeim tíma þegar samstillt bæjarstjórn minni- og meirihluta lagði línur sem leiddu til þess sögulega uppgangs sem hefur verið í Ölfusi síðustu árin og leiddi Gunnsteinn þessi stóru verkefni.
Hér má nefna endurbætur og uppbyggingu Þorlákshafnar sem opnaði fyrir siglingar flutningaskipa. Samninga og samskipti við Smyril Line vegna uppbyggingar starfsemi félagsins í Þorlákshöfn og samninga við Lýsi hf. um lokun fiskþurrkunarverksmiðju við Unubakka og uppbyggingu nýrrar verksmiðju á Víkursandi, nokkuð sem var búið að kalla eftir í áraraðir. Samskipti við forsvarmenn Landeldis, nú First Water, um uppbyggingu í Þorlákshöfn, samninga og samskipti við Hveragerðisbæ um uppbyggingu leik- og grunnskólamannvirkja í Hveragerði með þátttöku Ölfuss og fleira. Allt eru þetta risastór framfaraverkefni sem má með sanni segja að söguleg uppbygging í dag byggi á.
Berglind Friðriksdóttir er raunverulega klínískur sálfræðingur og ótrúleg áhugakona um málefni sveitarfélagsins. Í mörg ár hefur hún lesið fundargerðir og sett sig vel inn í málin og kom svo öflug inn í bæjarstjórn þegar ég skaust á þing. Ég þekki varla vandaðri manneskju og treysti engum betur fyrir að gæta að velferð samfélagsins og taka góðar ákvarðanir fyrir hönd íbúa í sveitarfélaginu.
Pálmi Þór Ásbergsson er einn af þeim fjölmörgu rótgrónu Þorlákshafnarbúum sem hafa prófað að búa annarsstaðar en svo fundið að það er hvergi betra að byggja sér heimili og ala upp börn heldur en hér heima í Þorlákshöfn. Hann vinnur í sértækri félagsmiðstöð í Reykjavík, fyrir börn með sérstakar stuðningsþarfir og hefur gríðalegan metnað fyrir því að við hér í Ölfusi gerum betur hvað það varðar. Í dag er hvorki frístundastarf né íþróttastarf fyrir börn með sértækar stuðningsþarfir og úr þessu vill hann bæta ásamt því að stórefla frístunda- og tómstundastarf fyrir öll ungmenni.
Bryndís Sigurðardóttir býr á Glæsivöllum í Ölfusi og er dóttir Sigga Sól, fyrir þau sem muna eftir þeim skemmtilega og listræna smíðakennara sem starfaði í Grunnskóla Þorlákshafnar. Bryndís er með ótrúlega víðtæka starfsreynslu. Hún hefur meðal annars verið sveitarstjóri, rekið fiskvinnslu og útgerð, fært bókhald og gert upp fyrirtæki, verið verslunarstjóri, stýrt tölvudeildum og fjölmiðli. Bryndís hefur þá bjargföstu skoðun að við séum öll jöfn, eigum skilið jöfn tækifæri og virðingu. Allt sem við gerum á að miðast við það. Hún dáist að dugnaði, heiðarleika og hugrekki en hefur óbeit á spillingu, sérhygli og óheiðarleika. Við þurfum á fólki eins og Bryndísi að halda í hagsmunagæslu fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Hér hef ég aðeins talið upp efstu fjögur af listanum, en listinn í heild er skipaður þannig fólki að hvert og eitt þeirra hefðu getað verið í efstu fjórum sætunum. Hægt er að fylgjast með á facebook síðu Samfylkingarinnar í Ölfusi þar sem þau verða öll mjög vel kynnt á næstu vikum.
Bæjarstjóraefnið Bryndís Gunnlaugsdóttir
Það er ekki hægt að ljúka við þessa grein án þess að tala um bæjarstjóraefni listans. Ein reynslumesta manneskja landsins þegar kemur að þekkingu á sveitarstjórnarmálum. Hún kennir fagið í tveimur háskólum, starfar hjá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga, þar áður hjá KPMG, meðal annars við að taka út rekstur sveitarfélaga, fyrrum forseti bæjarstjórnar í Grindavík, er lögfræðingur og síðast en alls ekki síst, körfuboltakempa og margreyndur körfuboltaþjálfari. Eins og það sé ekki nóg, þá spilar hún líka á blásturshljóðfæri og gæti hæglega tekið þátt í Lúðrasveit Þorlákshafnar ef tími gefst.
Bryndís skilur að þetta starf krefst bæði fagmennsku og leiðtogahæfni með víðtækri samvinnu að leiðarljósi og hún skilur líka hvernig hjartað slær í samfélagi eins og í Ölfusi, enda margt líkt með hennar fyrrum heimabæ, Grindavík, og samfélaginu sem hefur byggst upp í Þorlákshöfn. Samfélagi sem byggðist upp á sjávarútvegi en hefur líka þurft að finna nýjar leiðir til þess að byggja upp atvinnuvegi í sveitarfélaginu. Samfélagi þar sem maður er manns gaman og menning og félagslíf er ekki bara til skrauts heldur hjartsláttur samfélagsins. Bryndís barðist á eftirtektarverðan hátt fyrir Grindvíkinga þegar bærinn var rýmdur á sínum tíma og mun á sama hátt standa vörð um hagsmuni Sveitarfélagsins Ölfus.
Bryndís hefur sagt að komi til þess að hún taki að sér þetta mikilvæga starf þá mun hún flytja til Þorlákshafnar frá Hveragerði, ásamt manni sínum og dóttur og ætlar sér að vera í góðum tengslum við íbúa í sveitarfélaginu, starfsfólk þess, atvinnulíf og taka virkan þátt í íþrótta- og menningarlífi sveitarfélagsins.
Þessi hópur er ekki að fara að slá slöku við og íbúar Ölfuss þurfa síður en svo að óttast það að í sveitarfélaginu verði stöðnun eða afturför við meirihlutaskipti í næstu sveitarstjórnarkosningum. Það er nefnilega hægt að halda áfram þeirri uppbyggingu sem er í gangi samhliða því að stórefla stjórnsýslu, samráð og náungakærleik í starfsemi sveitarfélagsins.
Íbúar í Ölfusi hafa val í kosningunum sem eru eftir tæpa tvo mánuði. Það er gott að hafa val og það er gott þegar valið er eins skýrt og raun ber vitni.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir
Alþingiskona á lista Samfylkingar, fyrrum bæjarfulltrúi í Ölfusi og núverandi íbúi í Þorlákshöfn

