Rekstrarafgangur upp á 1.577 milljónir, skuldaviðmið lækkar, eignir aukast og íbúum fjölgar
Sótt fram á forsendum verðmætasköpunar
Ársreikningar Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2024 hafa nú verið birtir.
Niðurstaða ársreiknings 2024 sýnir jákvæða rekstrarniðurstöðu A og B hluta um 1.577 milljónir króna. Rekstarniðurstaða A hluta var jákvæð um 1.267 milljónir króna. Þessu fjármagni hefur þegar verið varið til uppbygginga innviða, niðurgreiðslu skulda og uppbyggingar þjónustu við bæjarbúa. Samkvæmt efnahagsreikningi nema heildareignir A og B hluta um rúlega 10 milljörðum króna. Bókfært eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2024 nam 4.500 milljónum króna og er eiginfjárhlutfall sveitarfélagsins 59,47%.
Ánægjulegt er að sjá að skatttekjur án framlaga úr jöfnunarsjóði hækka úr 2.460 milljónum árið 2023 í 2.727 milljónum árið 2024. Skýringin á þessum auknu tekjum liggur í því að íbúafjölgun hefur verið mikil á þessum tíma auk þess sem nýjar fasteignir, bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði hefur fjölgað hratt.
Þrátt fyrir að álagningahlutfall fasteigna hafi verið lækkað um 40% frá árinu 2018 halda fasteignagjöld áfram að skila auknum tekjum vegna fjölgun bæði atvinnuhúsnæðis og íbúðarhúsnæðis. Árið 2023 skiluðu fasteignagjöld samtals 554 milljónum en árið 2024 skiluðu þau 604 milljónum.
Íbúum fjölgaði um rúmlega 5% á árinu 2024 og hefur þeim þar með fjölgað um hátt í 25% síðan 2018. Allt útlit er fyrir að íbúum fjölgi áfram á árinu 2025 enda mikil og hröð umsvif í byggingu íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu. Til marks um það má geta að í dag eru 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn.
Skuldaviðmið Sveitarfélagsins Ölfuss hefur lækkað undanfarin ár, þrátt fyrir miklar fjárfestingar. Skuldaviðmiðið 2023 var 60,07%, árið 2024 fór það niður í 16,5%.
Fáum dylst að höfnin í Þorlákshöfn er mesta vaxtahöfn landsins. Mat flestra er að uppbygging hafnarinnar sem inn- og útflutningshafnar sé rétt að hefjast og árangurinn, svo magnaður sem hann er, sé einungis reykurinn af réttinum. Frekari vöxtur sé framundan. Þá ber að líta til þess að framkvæmdir eru nú þegar hafnar við stærstu atvinnuverkefni landsins í landeldi í Þorlákshöfn. Áætlað er að verja allt að 500 milljörðum á næstu 7 árum til þeirra verkefna og því allt útlit fyrir mikinn áframhaldandi vöxt og velferð á forsendum verðmætasköpunar.
Niðurstaða ársreikninga er bæjarstjórn þó fyrst og fremst hvatning til að gæta þess áfram að missa ekki tökin á skulda og útgjaldahliðinni. Vandaður rekstur er það sem helst tryggir öfluga og góða þjónustu. Mikilvægasta velverðarverkefni á öllum tíma er enda að gæta að þvi að missa ekki tökin á rekstrinum. Í Ölfusi hefur verið byggt upp sterkt þjónustunet þar sem skólarnir og íþróttaaðstaðan eru meðal helstu flaggskipa þjónustunnar. Sveitarfélagið Ölfus vinnur nú að því að nýta þá sterku stöðu sem birtist í ársreikningunum til að bæta þjónustu við bæjarbúa enn frekar og eftir atvikum að bjóða nýja íbúa velkomna.

Hamingjan er hér!
Elliði Vignisson, bæjarstjóri