Skemmtilegt sumarnámskeið í hönnun og listsköpun fyrir stelpur og stráka á aldrinum 10 – 12 ára þar sem börnunum verður gefinn kostur á að vinna með og þroska rýmistilfinningu og læra að vinna með fjölbreytt efni, gera módel, stækka upp og mála. Hugmyndin byggir á því að börnin fái tækifæri til að leyfa hugmyndafluginu að skapa sinn eigin heim með formum og litum. Öll mannvirkjagerð, hönnun og listir mannfólksins byggir einmitt á því hvernig form eru samsett og uppbyggð til að skapa efnisheiminn.
Skráning og upplýsingar hjá ragnar@olfus.is til föstudagsins 20. júní.