Framfarasinnar með hreinan meirihluta

Framfarasinnar fögnuðu eftir stórsigur kvöldsins.
Framfarasinnar fögnuðu eftir sigur kvöldsins.

B-listi Framfarasinna í Ölfusi vann stórsigur í sveitastjórnarkosningunum í gær. Flokkurinn hlaut 54,8% greiddra atkvæða og náði hreinum meirihluta í bæjarstjórn.

D-listi Sjálfstæðisflokksins heldur tveimur mönnum með 25,2% atkvæða og Ö-listi Félagshyggjufólks heldur einum manni með 20% atkvæða.

Bæjarstjórnin:

  1. (B) Sveinn Samúel Steinarsson
  2. (B) Anna Björg Níelsdóttir
  3. (D) Ármann Einarsson
  4. (Ö) Guðmundur Oddgeirsson
  5. (B) Jón Páll Kristófersson
  6. (B) Ágústa Ragnarsdóttir
  7. (D) Þrúður Sigurðardóttir