Sveitarfélagið Ölfus hefur á undanförnum árum orðið fyrir áföllum í atvinnumálum. Öll tengjast þessi áföll sjávarútvegi með einum eða öðrum hætti. Umtalsverður fiskveiðikvóti hefur verið seldur burt og nú síðast tilkynnti fiskvinnslufyrirtækið Frostfiskur að það hygðist flytja starfsemi sína til Hafnarfjarðar og þar með fara nærri 60 störf burt af svæðinu. Afleiðingar þess að hægt sé að selja kvóta burt frá sjávarbyggðum eru sláandi; atvinnumissir, fólksfækkun, verðfall á eignum fólks og þjónustuaðila svo fátt eitt sé nefnt.
Þrátt fyrir þessa augljósu galla á fiskveiðistjórnunarkerfinu virðist það vera stjórnvöldum erfitt að taka af skarið og koma í veg fyrir að slíkt geti átt sér stað. Miðflokkurinn leggur áherslu á að settar verði girðingar í lögum, ef svo má að orði komast, til þess að koma í veg fyrir að kvóti verði seldur burt úr byggðalögum, sem byggja afkomu sína að stórum hluta á fiskveiðum og vinnslu. Málefni Frostfisks eru frábrugðin að því leyti til að þar er ákvörðunin viðskiptalegs eðlis en hefur ekki beint með kvóta að gera.
Sveitarfélagið Ölfus hefur staðið sig vel í því að bregðast við þessum áföllum. Gott dæmi í þeim efnum er tiltrú þess á rekstri hafnarinnar og sú ákvörðun að ráðast í viðamiklar endurbætur á höfninni, til þess að geta aukið tekjur frá nýjum verkefnum. Endurbæturnar hófust fyrir rúmum tveimur árum síðan og hafa komið því til leiðar að í byrjun árs hófust reglubundnar millilandasiglingar til og frá Þorlákshöfn. Umsvif hafa stóraukist og er Þorlákshöfn nú komin á kortið sem inn- og útflutningshöfn, með stysta flutningstímann í sjóflutningum til og frá landinu. Ástæða er til að hrósa bæjarfélaginu fyrir þetta verkefni og þá framsýni sem það hefur sýnt með þessu.
Brýnt að tryggja fjármagn úr ríkissjóði til að ljúka hafnarframkvæmdum
Endurbótum á höfninni er hins vegar ekki lokið og er brýnt að tryggja fjármagn til að ljúka þeim, svo stærri skip geti athafnað sig. Framhald verkefnisins er á samgönguáætlun en fjármagn ekki tryggt. Sveitarfélagið áætlar að það sem úti stendur kosti á bilinu 800-900 milljónir, sem er töluvert lægra heldur en áætlanir gerðu ráð fyrir í upphafi. Kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs er á bilinu 60-70%. Brýnt er að í fjárlögum 2018 verði tryggt fjármagn af hálfu ríkisins, svo hefja megi framkvæmdir næsta sumar við síðari áfangann. Hér er á ferðinni arðbært og samfélagslega mikilvægt verkefni – lífæð bæjarfélagsins, sem stuðlar að vexti þess og viðgangi.
Birgir Þórarinsson
Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi