Meirihluti samgöngunefndar Alþingis mun leggja til að veggjöld verði tekin upp um allt landið til að fjármagna vegagerð. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, tekur jákvætt í að veggjöld verði tekin upp um land þar sem tryggt verði að engin þurfi að borga meira en eitthvað ákveðið hámark á ári. Þetta kom fram í viðtali Morgunblaðsins við hann í dag.
Sem dæmi sagði hann að „ef hver borgar ekki meira en því sem einn kaffi latte kostar á viku, um sex hundruð krónur, þá eru það 31.200 krónur.“
„Ef slík fjárhæð, og jafnvel þó hún væri eitthvað hærri, gæti hjálpað okkur að vinna þjóðvegakerfinu út úr þessu miðaldarástandi sem nú er og yfir í það að þjónusta allan þann fjölda sem notar þetta í dag, þá finnst mér til mikils unnið,“ sagði Elliði í samtali við Morgunblaðið.
Á Facebook síðu sinni bætti Elliði við að „eitt af lykilatriðinu fyrir okkur hér er að samhliða uppbyggingu á Suðurlandsvegi verði Þrengslavegurinn tvöfaldaður. Ég ætlast til þess að það verði tryggt þegar þingsályktunartillaga verður samþykkt.“