Leiklistarval Grunnskólans í Þorlákshöfn sýnir leikritið Morð eftir Ævar Þór Benediktsson (vísindamann) miðvikudagskvöldið 29. maí kl. 20:00.
Um er að ræða skemmtilegan einþáttung með bráðfyndnum undirtóni þar sem við skyggnumst inn á fund hjá samtökunum MA eða Morðingjum Anonymous. Aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða.
Miðaverð er kr. 1000.
Leikarar í sýningunni eru Birgitta Björt Rúnarsdóttir, Lilja Rós Júlíusdóttir, Rebekka Matthíasdóttir, Salín Steinþóra Guðmundsdóttir, Sandra Magnúsdóttir Kilinska og Sigríður Fjóla Þórarinsdóttir. Leikstjóri er Magnþóra Kristjánsdóttir. Sýnt verður í sal Grunnskólans