Landvernd skorar á sveitarfélög að hafna námuvinnslu

Í haust safnaði Landvernd undirskriftum þar sem skorað var á sveitarstjórnir Mýrdalshrepps og Ölfuss að hafna námuvinnslu á Mýrdalssandi og í Þrengslum. Áskorunin er á þessa leið:

„Ég skora á sveitarstjórnir Mýrdalshrepps og Ölfuss að hafna námuvinnslu á Mýrdalssandi og í Þrengslum, með tilheyrandi mengandi efnisflutningum og náttúruspjöllum. Veruleg mengun og truflun hlytist af á Suðurlandi þar sem ætlunin er að opna stórar námur fyrir veðri og vindum. Innviðir á Suðurlandi eru ekki byggðir til að þola stöðuga umferð þungaflutningabíla, auk þess sem umferðaröryggi yrði ógnað. Ekki hefur verið sýnt fram á ávinning samfélagsins af námuvinnslunni.“

Alls söfnuðust 2762 undirskriftir og Tryggvi Felixson formaður Landverndar afhenti fulltrúum sveitarfélaganna tveggja, þeim Einari Frey Elínarsyni sveitarstjóra Mýrdalshrepps og Söndru Dís Hafþórsdóttur sviðsstjóra fjármála-, stjórnsýslu- og menningarmála sveitarfélagsins Ölfuss, undirskriftalistann nýverið.