Hamingjan við hafið hefst á morgun

Bæjarhátíð okkar Ölfusinga, Hamingjan við hafið hefst á morgun þriðjudaginn 6. ágúst með því að Leikhópurinn Lotta kemur með sýninguna Bangsímon í Skrúðgarðinn kl. 16:00. Mikið verður um dýrðir alla vikuna eins og sjá má á meðfylgjandi dagskrá. Íbúar og aðrir gestir eru hvattir til að kynna sér hana vel og mæta vel á alla viðburðina sem í boði eru. Einnig væri gaman að sjá fólk skreyta í hverfalitunum eins og tíðkast hefur í gegnum árin. Það er Sveitarfélagið Ölfus sem stendur að hátíðinni og verkefnastjóri hennar er Magnþóra Kristjánsdóttir. Fjölmargir aðilar styrkja hina ýmsu viðburði hátíðarinnar en það eru:

Geo Salmo
Fasteignasala Suðurlands
First Water
Smyril Line
Landsbankinn
Ölfusborg
Kvenfélag Þorlákshafnar
Skinney Þinganes
Bláhnúkur
Fiskmarkaður Íslands
Black Beach Tours
Black Beach Guesthouse
Malbiksstöðin
Trésmiðja Heimis
Arnarlax
Suðurverk