Eitt stærsta vinnsluhús landsins rís í Þorlákshöfn

Fyrstu skóflustungurnar að nýju vinnsluhúsi landeldisfyrirtækisins First Water voru teknar á Laxabraut 19 í Þorlákshöfn í fyrradag. Það voru þær Amelía Ósk Hjálmarsdóttir stöðvarstjóri, Sigríður Birna Ingimundardóttir verkefnastjóri og Valgerður Friðriksdóttir mannauðsstjóri sem munduðu skóflurnar fyrir hönd fyrirtækisins, en á fjórðu skóflunni var Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS. Stefnt er að því að vinnsluhúsið verði tekið í notkun haustið 2026 en heildargólfflötur þess verður alls 30.500 m2. Full starfsemi mun vera í húsinu alla daga ársins og verður allur tæknibúnaður háþróaður og hinn vandaðasti. 

Hér má sjá tölvuteiknaða mynd sem sýnir hvernig húsið mun líta út.

Að sögn Valgerðar Friðriksdóttur mannauðsstjóra First Water verða um 115 manns við vinnslu í húsinu þegar starfsemin verður komin á fullt og stefnt á að allur fiskur frá First Water fari þarna í gegn. Það skipti þau miklu máli að hafa sem mest af starfseminni í Þorlákshöfn og því sé þetta stórt skref fram á við. Hún segist hlakka mikið til að sjá húsið rísa og verða tekið í notkun.

Alls 300 manns koma til með að starfa hjá fyrirtækinu frá árinu 2029 en heildarfjárfesting First Water í Þorlákshöfn er áætluð um 120 milljarðar króna. 

„Við stefnum hátt og komumst þangað með því að vanda til verka og hafa óbilandi trú á verkefninu og löngun til að vinna það vel. Landeldi á svo mikið inni og við ætlum að gera allt okkar til að sýna fram á það“, segir Valgerður.