Nýjar reglur um garðaþjónustu taka gildi í sumar

Í ört stækkandi sveitarfélagi var mikilvægt að setja reglur um garðaþjónustu en áður bauð sveitarfélagið uppá garðslátt án endurgjalds fyrir eldri borgara. Síðastliðið sumar bárust yfir 30 beiðnir um garðslátt sem þjónustumiðstöð Ölfuss átti erfitt með að sinna vegna fjölda og annarra verkefna.

Ákveðið var að skoða reglur í öðrum sveitarfélögum í nágrenninu og hjá öðrum sambærilegum. Sviðsstjóri fjölskyldu og fræðslusviðs vann drög að reglum í samvinnu við umhverfisstjóra en reglurnar taka mið af því að þjónustan er ekki lengur veitt á vegum þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins.

Markmiðið með reglunum var að koma til móts við ellilífeyris- og örorkulífeyrisþega sem eru með 75% örorku og geta ekki hjálparlaust hirt lóðir sínar. Um leið var horft til þess að útfæra þjónustuna þannig að undir garðaþjónustu flokkast sláttur og hreinsun grasflatar, snyrting limgerða ásamt beðahreinsunum.
Sjá reglur um garðaþjónustu fyrir ellilífeyris- og örorkulífeyrisþega

Útfærsla þjónustunnar:

  1. Þjónustuþegar leita sjálfir til þeirra þjónustuaðila sem bjóða upp á garðaþjónustu og sjá um skipulagningu og greiðslur til viðkomandi fyrirtækis. Í kjölfarið er sótt um niðurgreiðslu til sveitarfélagsins.
  2. Tímabil niðurgreiðslu gildir frá 15. maí – 30. september ár hvert.
  3. Hámarksupphæð niðurgreiðslu nemur kr. 48.000 á ári.

Á fundi fjölskyldu og fræðslunefndar þann 12. febrúar 2025 voru samþykkt drög að reglum um garðaþjónustu fyrir elli og örorkulífeyrisþega í Ölfusi. Reglurnar voru síðan staðfestar í bæjarstjórn þann 27. febrúar 2025.

Réttur til niðurgreiðslu á þjónustu:
Rétt til niðurgreiðslu á garðaþjónustu eiga ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegar með 75% örorku og hafa lögheimili í Sveitarfélaginu Ölfusi. Réttur til niðurgreiðslu skapast aðeins ef viðkomandi hefur mánaðarlega framfærslu undir eftirfarandi upphæðum sem taka mið af framfærslu Tryggingastofnunar ríkisins:

Árið 2025:

  • Einstaklingur kr. 521.738
  • Hjón eða sambýlisfólk kr. 832.985

Umsóknarferli og fylgigögn:
Umsókn um niðurgreiðslu á garðaþjónustu má nálgast í íbúagátt á heimasíðu Ölfuss eftir 15. maí næstkomandi.

Með umsókn þarf að skila inn kvittun vegna kaupa á þjónustu og nýjasta skattframtali viðkomandi. Einnig þarf staðfestingu á örorku þegar við á.