Orkuveitan og Orka náttúrunnar (ON) bjóða til opins húss í sýningaraðstöðunni Galleríi undir stiganum á neðri hæð Ráðhússins í Þorlákshöfn í anddyri bæjarbókasafnsins, fimmtudaginn 5. júní kl. 16-18 til að kynna umhverfismatsskýrslu vegna fyrirhugaðra vinnslu- og rannsóknarborana í Hverahlíð II og Meitlum.
Hægt er kynna sér umhverfismatsskýrsluna og setja fram athugasemdir og ábendingar á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar: https://skipulagsgatt.is/issues/2023/1005. Bent er á að umsagnarfrestur almennings og hagsmunaaðila er til 23. júní 2025.
Öll áhugasöm eru hvött til að mæta á opið hús og kynna sér fyrirhugaðar framkvæmdir og verður starfsfólk bæði Orkuveitunnar og ON á staðnum til að svara spurningum.
Upplýsingavef um verkefnið má finna hér