Losun minnkar um 24% milli ára

Samkvæmt upplýsingum af vef Orku náttúrunnar hefur losun frá virkjunum ON dregist saman um 24% milli ára. Skýrist það af nýrri og stærri lofthreinsistöð við Hellisheiðarvirkjun en hún var tekin í notkun á síðasta ári. Hún fangar nær allt gas frá virkjuninni og bindur það varanlega í bergi.

Tækninni fleygir stöðugt fram og sífellt er verið að vinna að því að draga hraðar úr losun.

Ný stöð sem tekið hefur til starfa nefnist Steingerður og tekur hún bæði við koltvísýringi og brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun. Gas er leyst upp í vatni og dælt niður í jarðlög. Þar steingerist þar og binst varanlega.

Viljum vera í fremstu röð
„Við framleiðum og seljum raforku sem byggir á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Það skiptir okkur því miklu máli að þróa og innleiða lausnir sem draga úr umhverfisáhrifum orkuframleiðslunnar,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

„Þessi þróun styrkir líka samkeppnisstöðu okkar. Fyrirtæki og samfélög sem vilja kaupa sjálfbæra orku vilja vita hvernig hún er framleidd, og þar viljum við vera í fremstu röð.“

Carbfix tæknin bindur gasið varanlega

Orka náttúrunnar er hluti af fyrirtækjum Orkuveitunnar ásamt Carbfix.

„Við erum nú að fanga nær allt gas frá Hellisheiðarvirkjun og binda það í bergi með Carbfix-tækninni, sem var þróuð innan Orkuveitunnar,“ segir Snorri Jökull Egilsson, deildarstjóri umhverfis- og loftslagsmála hjá Orkuveitunni.

„Þetta er tækni sem hefur skipt sköpum í loftslagsmálum á Íslandi svo það er stór áfangi að ná að fullskala þessa lausn við stærstu jarðhitavirkjun Evrópu. Loksins fáum við að sjá þennan árangur raungerast á þessum skala eftir mikla vinnu og fjárfestingar en ekki síst tíma, þar sem við hófum niðurdælingu á tilraunaskala árið 2012,“ segir Snorri.

Meiri áhrif á þessu ári

Síðan Hellisheiðarvirkjun var opnuð hefur hún séð um stærstan hluta losunar í orkuframleiðslu Orkuveitunnar eða um 40.000 tonn af koltvísýringi á ári. Dæmi er tekið um Nesjavallavirkjun sem losar um 10.000 tonn árlega.

Steingerður hóf starfsemi um mitt ár 2025 og því náði hún aðeins hluta ársins í rekstri í fyrra. Árið 2026 verður hún í fullum rekstri allt árið og mun þá losunin minnkna enn frekar ef áætlanir standast.

Loftgæði batna

Koltvísýringur er ekki eina lofttegundin sem verið er að fanga heldur er líka um að ræða brennisteinsvetni. Með því að binda það minnkar lyktarmengun til muna.

sb
Hafnarfréttir

Hafnarfréttir