Vegalokanir vegna veðurs

Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar eru Þrengsli, Suðurstrandarvegur og Hellisheiði enn lokuð vegna veðurs. Taka á stöðuna um kl. 14:30. Fólk er hvatt til að fylgjast vel með stöðunni og veðurspá. Á vef Veðurstofunnar segir að veðrið eigi að vera gengið að mestu yfir um kl. 13:00. Önnur lægð er svo væntanleg á laugardaginn samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar.

sb
Hafnarfréttir

Hafnarfréttir