Græn svæði – fjárfesting í framtíð Þorlákshafnar

Þorlákshöfn er vaxandi bæjarfélag þar sem umhverfi, skipulag og lífsgæði íbúa skiptir okkur öll miklu máli. Í því sambandi er nauðsynlegt að hafa í huga að græn svæði eru ekki munaður heldur hluti af nauðsynlegum innviðum sem styrkja heilsu og vellíðan íbúa og efla þar að auki samfélagsandann sem er ekki síður mikilvægt. Í því skyni var skipaður starfshópur um græn svæði í Þorlákshöfn sem undirrituð sitja m.a. í en hópnum er ætlað að leggja ríka áherslu á vandaða uppbyggingu grænna svæða með skýrri forgangsröðun og ábyrgri nýtingu fjármuna.

Heildstæð sýn og markviss áætlun til framtíðar

Á grunni þeirrar vinnu liggur fyrir heildstæð mynd af stöðu og tækifærum þegar kemur að fegrun umhverfis í bæjarfélaginu okkar. Markmiðið var og er að kortleggja þau svæði sem fyrir eru, greina hvar þörfin er mest hverju sinni og ráðast í framkvæmdir sem skila ávinningi í margvíslegu tilliti til framtíðar. Fyrir árið 2026 liggur fyrir áætlun þar sem 30 milljónum króna verður varið markvisst í slík verkefni.

Bætt aðkoma og sterkari ásýnd bæjarins

Áhersla er lögð á að ljúka þeim verkefnum sem þegar eru hafin. Þar má nefna endurbætur á svokölluðum „Velkomin“ hól við bæjarinnganginn og endurnýjun trjágróðurs við aðalinngang Þorlákshafnar. Aðkoman að bænum hefur nú þegar tekið miklum stakkaskiptum til hins betra og til stendur að halda þeim framkvæmdum áfram og planta enn frekar á þeirri leið. Slíkar aðgerðir skipta miklu máli fyrir heildarásýnd bæjarins og fyrstu upplifun þeirra sem hingað koma.

Plöntun, útivist og fjölnota svæði fyrir alla

Unnið verður að víðtækri plöntun og sáningu víðs vegar um bæinn. Meðfram nýjum og eldri götum, í og milli hverfa, við tjaldstæði, íþróttasvæði og gönguleiðir verður gróður efldur til að fegra umhverfið og skapa skjól. Sérstök áhersla verður lögð á heilsustíginn og nærliggjandi svæði þar sem möguleikar eru til að sameina útivist, náttúrulegan gróður og aðgengi fyrir alla aldurshópa, ekki síst starfsfólk og nemendur skólanna okkar þriggja sem geta þá betur nýtt umhverfi sitt til útikennslu. Þar eru einnig fyrirhuguð fjölnota útisvæði sem nýtast jafnt til hvíldar, leikja og vetrarútivistar barna þar sem m.a. sígrænn gróður fær að njóta sín allt árið um kring.

Saga, sérkenni og lifandi bæjarrými

Við viljum jafnframt tryggja að uppbygging grænna svæða sé í takt við sögu og sérkenni Þorlákshafnar. Hugmyndir um sérstök blóma- og plöntuker, hönnuð með bæjarbraginn okkar í huga, sýna hvernig hægt er að skapa sterka ásýnd með vönduðum en hagkvæmum hætti. Eins teljum við mikilvægt að huga að lýsingu, ekki síst við sögulega staði, svo þeir njóti sín allt árið og verði hluti af lifandi bæjarrými. Í því sambandi má nefna nýja staðsetningu á hinum sögulega stein sem kallaður er Latur en hann hefur nú fengið það nýja hlutverk að bjóða bæjarbúa og gesti velkomna.

Öruggar og fallegar leiðir fyrir alla

Betri tengingar fyrir gangandi og hjólandi eru einnig lykilatriði. Með því að þróa göngustíga meðfram helstu leiðum bæjarins, færa þá fjær umferð og móta þá á þann hátt að þeir séu mannvænir og falli vel að umhverfi sínu, eru stigin skref í átt að öruggara, fallegra og heilsusamlegra umhverfi. Einnig hefur verið lögð áhersla á smekklega lýsingu meðfram nýjum göngustígum sem ramma inn hverfin og fegra bæinn okkar. 

Virðing fyrir rótgrónum svæðum við Óseyrarbraut

Við sem höfum verið hér lengur þekkjum öll grænu svæðin sem liggja með Óseyrarbrautinni. Þau hafa verið hluti af lífi okkar allra um áratugaskeið og eðlilegt að þau veki með okkur hlýjar tilfinningar. Í ljósi áforma um uppbyggingu á því svæði, sem við teljum jafnframt mjög ákjósanlega með tilliti til staðsetningar nálægt mikilvægum innviðum bæjarins, lýsum við yfir einlægum vilja til þess að vinna skipulag svæðisins af virðingu án þess þó að skerða möguleika svæðisins undir framtíðarheimili fólks. Því finnst okkur mikilvægt að árétta nú að skipulagið er ennþá í vinnslu og framundan er deiliskipulagsvinna sem við viljum sannarlega vinna í góðri samvinnu við íbúa með tilliti til þeirra sjónarmiða. Ætlun okkar er að skapa á svæðinu fallega byggð í bland við útivistar- og gróðurvin sem ungir sem aldnir geti notið á góðviðrisdögum. 

Sjálfbær uppbygging sem auðgar og gleður

Að þessum orðum sögðum er ljóst að græn svæði eru öllum hugleikin og okkur ofarlega í huga að gera vel í þeim efnum. Á sama tíma er mikilvægt að verkefnin séu leidd áfram með ábyrga fjármálastjórn að leiðarljósi. Kostnaðaráætlanir liggja fyrir, forgangsröðun er skýr og horft er til langtímaáhrifa hverrar framkvæmdar. Þannig tryggjum við að fjármunir íbúa nýtist sem best og að uppbygging grænna svæða verði sjálfbær.

Við í D-listanum í Ölfusi leggjum áherslu á bæjarfélag þar sem fallegt umhverfi, skynsamt skipulag og virkt samfélag helst í hendur. Það er okkur mikilvægt að umhverfið sé okkur hvati til útivistar ásamt því að gleðja og bæta samfélagsandann. Græn svæði eru lykillinn að því markmiði og með markvissum aðgerðum getum við byggt upp Þorlákshöfn af metnaði, skynsemi og virðingu fyrir nærumhverfi okkar.

Grétar Ingi Erlendsson skipar 1. sæti á D lista.

Guðlaug Einarsdóttir skipar 5. sæti á D-lista.

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir