Íþróttamaður Ölfuss árið 2016 er knattspyrnumaðurinn Guðmundur Karl Guðmundsson. Kjörið á íþróttamanni Ölfuss fór fram í Ráðhúsi Ölfuss í dag en samkvæmt íþrótta- og æskulýðsnefnd var valið mjög erfitt þar sem margir íþróttamenn úr Ölfusi sköruðu fram úr í sinni grein á síðasta ári.
Umsögn Íþrótta- og æskulýðsnefndar um Guðmund Karl:
Guðmundur Karl hefur leikið knattspyrnu með Fjölni í Grafarvoginum í Pepsí-deild karla undanfarin ár. Hann átti mjög gott tímabil á síðasta ári og var algjör lykilmaður í liði Fjölnis. Guðmundur er mjög fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum og er ákaflega duglegur og traustur leikmaður. Guðmundur skrifaði svo undir samning við Íslandsmeistara FH. Það verður gaman að fylgjast með honum á næstu tímabilum.
Tólf íþróttamenn voru tilnefndir í kjörinu um íþróttamann Ölfuss 2016 en listann má sjá hér fyrir neðan. Einnig voru viðurkenningar veittar til þeirra sem unnið hafa bikar- eða Íslandsmeistaratitil á árinu og/eða hafa keppt með landsliði Íslands í sinni grein.
Þessi voru tilnefnd til íþróttamanns Ölfuss 2016
- Guðmundur Karl Guðmundsson – Tilnefndur af Golfklúbbi Þorlákshafnar
- Birta Óskarsdóttir – Tilnefnd af Ungmennafélaginu Þór, fimleikadeild
- Viktor Karl Halldórsson – Tilnefndur af Knattspyrnufélaginu Ægi
- Katrín Stefánsdóttir – Tilnefnd af Hestamannafélaginu Háfeta
- Glódís Rún Sigurðardóttir – Tilnefnd af Hestamannafélaginu Ljúfi
- Halldór Garðar Hermannsson – Tilnefndur af Ungmennafélaginu Þór, körfuknattleiksdeild
- Styrmir Dan Steinunnarson – Tilnefndur af Ungmennafélaginu Þór, frjálsíþróttadeild
- Axel Örn Sæmundsson – Tilnefndur af Ungmennafélaginu Þór, badmintondeild
- Gyða Dögg Heiðarsdóttir – Tilnefnd af Ungmennafélaginu Þór, akstusíþróttadeild
- Guðmundur Karl Guðmundsson – Tilnefndur af íþrótta- og æskulýðsnefnd fyrir knattspyrnu
- Snorri Þór Árnason – Tilnefndur af íþrótta- og æskulýðsnefnd fyrir akstursíþróttir
- Þorsteinn Helgi Sigurðarson – Tilnefndur af íþrótta- og æskulýðsnefnd fyrir hnefaleika
Hafnarfréttir óska Guðmundi Karli og öllum þeim sem tilnefnd voru innilega til hamingju með frábæran árangur.