Steinninn Latur sem hefur undanfarin ár staðið í laut við Egilsbraut og Mánabraut var fluttur á nýjan og varanlegan stað við Ölfusbraut í dag. Næst á dagskrá er að ganga frá svæðinu í kringum steininn setja upp nýtt upplýsingaskilti og lýsingu.

Það voru Stórverk ehf, JÁ verk ehf og ÁB Lyfting ehf sem sáu um framkvæmdina fyrir sveitarfélagið Ölfus.

Hér má sjá myndir af flutningnum.