Samstarfsverkefni um nýtingu á 20 Megavöttum til að keyra miðstöð gervigreindar í Evrópu á næstu 5 árum.
Ölfus Cluster og AI Green Cloud ehf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu að gangsetja vistvænt gervigreindargagnaver á næsta ári. Gagnaverið muni hýsa leiðandi vélbúnað frá NVIDIA, tæknirisanum sem hefur skipað sig í sessi sem heillakýr gervigreindarbyltingarinnar (Hlutabréf NVIDIA hafa þrefaldast í virði á síðustu 12 mánuðum).
45% minni orkunotkun en í venjulegum gagnaverum
Með nýrri kælitækni sem kallast djúpkæling (e. immersion cooling) er tölvum og kísil steypt ofan í kælitanka með sérútbúnum vökva. Þessi kæling skilar áætluðum 45% heildarorkusparnaði samanborið við hefðbundin loftkæld gagnaver.
„Þetta verkefni passar mjög vel við stefnu Ölfus varðandi grænann iðngarð og hringrás hliðarstrauma. Um er að ræða enn eitt eggið í stækkandi körfu atvinnutækifæra á svæðinu ásamt því að verkefnið mun skila spennandi nýrri tækniþekkingu inn í Sveitarfélagið” sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri Þorlákshafnar.
Varmi endurnýttur í önnur verkefni
Ölfus Cluster mun aðstoða við að tryggja hentuga staðsetningu fyrir starfsemina þar sem innviðir á borð við rafmagn og gagnaflutningar verði brátt til staðar.
Háþróaða gangaverið muni geta endurnýtt 80% þess varma sem myndast við að keyra stór gervigreindarlíkön á vélbúnaði þess.
Þróuð verður aðferð til að nýta úttaksvarmann af 55 gráðu heitu vatni í önnur verkefni á svæðinu. Með þessu má ná allt að 80% endurnýtingu á orku sem er mjög í línu við þá stefnu sem grænir iðngarðar í Þorlákshöfn hafa lagt fram.
“Vélbúnaðurinn sem keyrir gervigreindina sem við erum öll farin að nota í dag krefst mikillar orku og býr því til mikinn hita. Nú fyrst getum við hagnýtt þennan affallsvarma og veitt honum í önnur verkefni sem geta nýtt hann.” sagði Kjartan Hrafn Kjartansson, forstjóri AI Green Cloud ehf.
AI Green Cloud ehf. stefnir á að tryggja uppbyggingu og þekkingu í gervigreind á íslandi til framtíðar. Það er í nánu samstarfi við “GPU as a Service” (GaaS) fyrirtækið AI Green Bytes AS frá Noregi, sem leiðir þróun, rekstur og þjónustu á djúpkælingu í gagnaverum með NVIDIA-búnaði.
Í upphafi er um að ræða um 0,6 MwH af rafmagni sem gæti stækkað í allt að 20 MW yfir næstu 5-10 árin.
AI Green Cloud ehf var stofnað árið 2024 af íslenskum fjárfestum í þeim tilgangi að styðja við hringrásarhagkerfið í gagnaverum á Íslandi. Ölfus Cluster er áhersluverkefni Sveitarfélagsins Ölfus við að styrkja umhverfismál og fjölgun starfa. AI Green Bytes AS var stofnað árið 2023 og er með höfuðstöðar í Noregi og skrifstofur í Portúgal og nú einnig Íslandi.
Frá undirskrift viljayfirlýsingu.
Páll Marvin Jónsson framkvæmdastjóri Ölfus Cluster og Kjartan Hrafn Kjartansson, forstjóri AI Green Cloud ehf.