Fjölnota íþróttahús hefur lengi verið í umræðunni í okkar sveitarfélagi. Við hjá Samfylkingunni og félögum ætlum að gera þá hugmynd að veruleika.
Það er öllum ljóst að slíkt íþróttamannvirki myndi stórbæta þjónustu við íþróttafélög og iðkendur í t.d. fótbolta, frjálsum íþróttum og golfi en það kemur fleira til.
Slíkt hús verður einnig aðstaða fyrir hinn almenna borgara til að stunda hreyfingu í skjóli fyrir veðri og vindum. Þá erum við sérstaklega að hugsa um tækifæri fyrir eldri borgara en það gaf einnig góða raun í Grindavík að hafa húsið opið fyrir krakka, innan sem utan íþróttafélaga, að koma og stunda hreyfingu og hafa gagn og gaman af. Það væri einnig kjörið að nýta þetta samhliða grunn- og leikskólastarfi og auka þannig enn frekar þátttöku barna í íþróttum og vera frábær viðbót við það flotta starf sem fer fram í skólunum okkar. Þetta íþróttamannvirki myndi á sama tíma létta á íþróttahúsinu og auka möguleika fyrir aðrar íþróttir að komast að og fá aðstöðu undir sína starfsemi. Raddir hafa verið uppi um að ræktin sé sprungin og erfitt að stækka núverandi aðstöðu en svona hús gæti einnig nýst undir slíkt. Þá er auðvelt að sjá fyrir sér tækifæri fyrir aðra menningartengda viðburði s.s. tónleikahald og ýmsar sýningar eða kynningar. Þá þekkjum við flest öll að skipulagðir viðburðir utandyra hafa þurft að víkja fyrir veðri og þetta væri frábær kostur þegar slíkt kemur upp.
Listinn að ofan er alls ekki tæmandi en gefur ákveðna hugmynd um möguleikana sem fjölnota íþróttahús býður upp á. Það er líka okkar vilji að húsið verði nýtt sem mest og þjónusti íbúa sem best.
Varðandi staðsetninguna, sem verður mögulega umdeild, þarf að taka tillit til margra sjónarmiða: Nálægð við önnur íþróttamannvirki og samlegð við þau, aðgengi og bílastæðamál, möguleika á framtíðarstækkun og áhrif á íbúa og umhverfi. Þar sjáum við frábært tækifæri, að kynna vel fyrir íbúum og hagsmunaaðilum 2 -3 mögulegar staðsetningar og kjósa svo um bestu staðsetninguna. Það er algjörlega í takt við okkar stefnu hjá Samfylkingunni og félögum, að treysta íbúum og gefa þeim aukið vægi í að hafa áhrif á samfélagið sitt og nærumhverfi.
Það er vissulega margt eftir að gera, s.s. þarfagreina og funda með forsvarsmönnum íþróttafélaga, áætlanagerð, frumhönnun, kostnaðargreina slíka framkvæmd og finna henni stað o.m.fl. Það er því ekki hægt að sjá fyrir nákvæmlega kostnað að svo stöddu þótt uppbygging annarra sveitarfélaga gefi hugmyndir. Ljóst er að kostnaðurinn við fjölnota íþróttahús er töluverður en sveitarfélagið getur algjörlega staðið undir honum og það má halda því til haga að minni bæjarfélög en okkar hafa ráðist í slíka framkvæmd. Útfærsla á fjármögnun hefur verið misjöfn á milli sveitarfélaga en svona mannvirki er byggt með áratuga notkun í huga og því er verið að fjárfesta til framtíðar. Einnig gerir þetta sveitarfélagið að enn eftirsóknarverðari búsetukosti fyrir utanaðkomandi – meira fólk = meira fjármagn til reksturs. Þannig hefði þetta mjög jákvæð áhrif á fasteignamarkaðinn, hvort sem horft er til sölu á öllum þeim íbúðum sem eru í byggingu eða fólks sem vill minnka eða stækka við sig. Það er líka skýr afstaða okkar að þetta muni ekki hafa neikvæð áhrif á nauðsynlega uppbyggingu annarra innviða í sveitarfélaginu, s.s. stækkun grunnskólans. Það er mikilvægt að hefja undirbúning strax svo hægt sé að tryggja aðkomu allra og að framkvæmdin ásamt fjármögnun verði sem hagkvæmust.
Fjölnota íþróttahús er ekki bara raunhæfur möguleiki heldur frábær lyftistöng fyrir okkar samfélag, gefur mikinn kraft í íþróttastarf og styður við menningu og almenna hreyfingu og samveru þar sem allir íbúar á öllum aldri geta notið góðs af. Við munum leggja mikinn kraft í þetta verkefni og vinna hörðum höndum að þetta verði að veruleika, í góðu og nánu samstarfi og sátt við hagsmunaaðila og íbúa. Stuðningur við Samfylkinguna og félaga er því stuðningur við uppbyggingu fjölnota íþróttahúss. Setjum X við S þann 16. maí.
Sigfús Benóný Harðarson
6. sæti á lista Samfylkingar og félaga í Ölfusi

