Vegalokanir vegna veðurs

Búið er að loka Hellisheiði, Þrengslum og Suðurstrandarvegi vegna veðurs. Slæmt skyggni er í Þrengslum og á Hellisheiði auk þess sem eitthvað er af föstum bílum.

Björgunarsveitin Mannbjörg hefur sett upp lokunarpósta við Þrengsli og Suðurstrandarveg og er fólk beðið að sýna þolinmæði og skilning.

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir