Ný heimasíða bókasafnsins komin í loftið

Bókasafnið í Ölfusi hefur opnað nýja heimasíðu sem ætlað er að bæta aðgengi að þjónustu safnsins og gera notendum auðveldara að nálgast upplýsingar og efni.

Á nýju heimasíðunni má meðal annars finna upplýsingar um viðburði, opnunartíma og fjölbreytta þjónustu sem bókasafnið býður upp á. Þá hefur sérstök áhersla verið lögð á einfalt og notendavænt viðmót, sem hentar bæði börnum og fullorðnum.

Með þessari uppfærslu tekur bókasafnið mikilvægt skref í átt að aukinni stafrænnri þjónustu og betri tengingu við samfélagið í Ölfusi.

Íbúar eru hvattir til að heimsækja nýju síðuna og kynna sér það sem í boði er.

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir