Ég býð mig fram til sveitarstjórnar í Ölfusi vegna þess að ég trúi því að við getum gert betur. Ég vil að Ölfus verði staður þar sem fólk hefur raunverulegt val um að búa, starfa og byggja upp framtíð. Ekki bara gott samfélag til að alast upp í, heldur samfélag sem fólk snýr aftur til og vill vera áfram í. Samfélag sem býður upp á öll lífsins gæði. Fyrirtaks skóla, góða íþróttaaðstöðu, veitingastaði, verslanir og allt það annað sem gerir líf okkar betra.
Af hverju fór ég í framboð
Árið 2018 bauð ég mig fram í fyrsta skipti. Ég gerði það vegna þess að mér þykir vænt um sveitarfélagið mitt. Hér hef ég ákveðið að vera, búa fjölskyldu minni heimili og ala upp mín börn. En ég vil líka að börnin mín njóti annarra tækifæra en ég ólst upp við. Á mínum uppvaxtarárum sá ég á eftir alltof mörgu góðu fólki sem fluttist héðan vegna þess að það fékk ekki vinnu við hæfi. Bekkjarfélagar fóru í nám og fluttust svo búferlum þar sem þeir höfðu ekki tækifæri til að nýta þá þekkingu í heimabyggð sem þeir höfðu aflað sér. Þessu vildi ég breyta. Ég vil að börnin okkar allra geti fundið sína fjöl í lífinu og búið fjölskyldum sínum líf hér í Ölfusi kjósi þau það.
Mín sýn
Ég sé fyrir mér sveitarfélag sem býr yfir fjölbreyttu atvinnulífi þar sem allir geta fundið sér vinnu við hæfi óháð menntun, kyni og aldri.
Ég sé fyrir mér blómlegan miðbæ í Þorlákshöfn sem er lifandi samkomustaður með fjölbreyttri þjónustu og viðburðum.
Ég sé fyrir mér stækkandi höfn sem styður við uppgang atvinnulífs og býr til ný sóknarfæri.
Ég sé fyrir mér hjúkrunarheimili þar sem eldri Ölfusingar geta fengið þá þjónustu sem þeir þurfa og eiga skilið.
Ég sé fyrir mér samfélag sem tekur utan um alla og þjónusta mætir fólki af virðingu og faglegum metnaði.
Ég sé fyrir mér vaxandi samfélag í dreifbýlinu með virku samtali og samstarfi við íbúa og landeigendur.
Ég sé fyrir mér bjarta framtíð fyrir alla íbúa sveitarfélagsins!
Kæri kjósandi
Ölfus er í sókn. Við sjáum það og finnum. Handan við hornið eru bæði ný sóknarfæri en líka víðtækar áskoranir. En það gerist ekki af sjálfu sér að þessi sókn skili sér í auknum tækifærum fyrir alla íbúa. Til þess þarf skýra forystu, vilja til að hlusta og kjark til að taka ákvarðanir.
Við á D-listanum höfum lagt okkur fram við að hlusta á íbúa og móta stefnu sem byggir á raunverulegum þörfum samfélagsins. Á næstu dögum munum við kynna hana nánar og ég hvet þig til að kynna þér málin vel. Við erum ætíð tilbúin til að mæta til skrafs og ráðagerða við einstaklinga og hópa, til að ræða stefnu okkar og vilja íbúa. Þá munum við kynna stefnuskrána á opnum fundi von bráðar og bera hana í öll hús í sveitarfélaginu.
Þegar þú gengur inn á kjörstað snýst valið ekki bara um næstu fjögur ár. Það snýst um þá framtíð sem við viljum byggja saman. Við biðjum þig um að kynna þér málin vel, skunda svo á kjörstað og setja X við D!
Grétar Ingi Erlendsson

