Dýpka á höfnina fyrir um 120 milljónir

hofnin03Fyrr á þessu ári bauð sveitarfélagið út framkvæmd við dýpkun hafnarinnar en tvö tilboð bárust í verkefnið.

Vegagerðin fór yfir tilboðin og lagði til að gengið yrði til samninga við lægstbjóðanda sem var Björgun ehf. Tilboð þeirra hljóðaði upp á rúmar 120 milljónir króna og samþykkti bæjarráð tilboðið á fundi sínum sem haldinn var 16. júlí síðastliðinn.