Viðgerð tekur lengri tíma en áætlað var

vidgerd01Eins og greint var frá í morgun þá stendur yfir viðgerð á hitaveitulögninni á gatnamótunum við ljósin í Þorlákshöfn og af þeim sökum eru tvær akgreinar lokaðar.

Þegar byrjað var á viðgerð kom í ljós að umfangið er meira en talið var í fyrstu um mun viðgerð því taka lengri tíma.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitsemi og nota austari innkomuna í bæinn á meðan.