Eldur í dráttavél í Selvogi

selvogur_bruni01
Mynd: Brunavarnir Árnessýslu

Rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi kviknaði í dráttarvél í Selvogi og voru slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu í Þorlákshöfn kallaðir á vettvang.

Talið er að kviknað hafi í út frá vélbúnaði en þarna höfðu menn verið að vinna við heyskap og var vélin í fullri vinnslu þegar að eldurinn kom upp.

Ekki reyndist mögulegt að forða dráttavélinni frá tjóni og er hún mikið skemmd.