Sigmar Björgvin Árnason nýr skipulags- og byggingafulltrúi

Sigmar Björgvin Árnason var í gær ráðinn sem nýr skipulags- og byggingarfulltrúi í Ölfusi. Ráðningarferlið var í höndum Capacent og sóttu alls 3 um starfið.

Sigmar er með BSc í byggingarfræði  og hefur töluverða reynslu en hann starfar í dag sem byggingafulltrúi hjá Grindavíkurbæ og hefur gert það frá árinu 2008. Hjá Grindavíkurbæ var hann einnig umsjónarmaður þjónustumiðstöðvar bæjarins, vatns- og fráveitustjóri og sá um allar framkvæmdir bæjarins.

Þrír einstaklingar sóttu um stöðuna en það voru:

  • Björn Guðmundsson
  • Gunnlaugur Jónasson
  • Sigmar Árnason