Elliði Vignisson ráðinn bæjarstjóri í Ölfusi

Elliði Vignisson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss. Var það  samþykkt á bæjarstjórnarfundi fyrr í dag.

Alls sóttu 23 einstaklingar um stöðuna en fimm drógu umsókn sína til baka og var Elliði því ráðinn úr hópi 18 umsækjenda.

Elliði er fyrrum bæjarstjóri í Vestmannaeyjabæ en hann sinnti því starfi í 12 ár og hefur því mikla reynslu á sviði sveitarstjórnarmála og rekstri sveitarfélaga.

Elliði Vignisson er fæddur 28. apríl 1969 og er því fimmtugur á næsta ári. Eiginkona hans er Bertha Johansen og eiga þau tvö börn, Bjarteyju Bríeti og handboltamanninn Nökkva Dan sem nýlega skrifaði undir hjá norska úr­vals­deild­ar­fé­laginu Ar­en­dal.