Nýjir lýsistankar rísa í Þorlákshöfn

Unnið hörðum höndum við uppsetningu tankanna.
Unnið hörðum höndum við uppsetningu tankanna.

Þessa dagana er Lýsi í óða önn að setja niður þrjá nýja tanka á athafnasvæði sínu í Þorlákshöfn eins og blaðamaður Hafnarfrétta tók eftir í bíltúr sínum um hafnarsvæðið í gær.

Samkvæmt Lýsi þá mun hver tankur mun rúma 1.500 tonn eða 4.500 tonn alls og verða þeir í 800 fermetra steyptri tankaþró. Fyrir voru smærri tankar sem rúmuðu alls 2.300 tonn. Hér er því um mikla aukningu á tankarými að ræða, og veitir ekki af til að mæta aukinni afkastagetu verksmiðjunnar í Reykjavík, en afköst hennar voru tvöfölduð fyrir tæpu ári síðan.

Ætlunin er að nota tankana undir hrálýsi, fyrst og fremst innflutt ómegalýsi sem er önnur aðal lýsistegund fyrirtækisins.