Söngvakeppni Svítunnar fór fram síðastliðið föstudagskvöld. Tvö atriði tóku þátt í keppninni og voru þau bæði stórglæsileg. Bergrún, Arna og Þröstur báru þó sigur úr býtum með lagið Leiðin okkar allra.
Þremenningarnir munu svo taka þátt fyrir hönd Svítunnar í undankeppni söngvakeppni Samfés á Suðurlandi, sem haldin verður föstudaginn 16. janúar á Kirkjubæjarklaustri.
Meðfylgjandi er myndband af glæsilegum flutningi þeirra frá keppninni.