Leikskólinn Bergheimar fær Grænfánann

graenfaninnLeikskólinn Bergheimar í Þorlákshöfn fékk afhentan sinn fyrsta Grænfána í dag. Katrín Magnúsdóttir frá Landvernd kom í leikskólann og afhenti Svölu Ósk Sævarsdóttur, formanni umhverfisnefndar Bergheima, fánann ásamt viðurkenningarskjali.

„Skóli á grænni grein hlýtur Leikskólinn Bergheimar í fyrsta sinn fyrir góða graenfaninn02frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar og fyrir að leggja sitt af mörkun til þess að efla og bæta umhverfismál innan skólans og í nærsamfélaginu,“ segir í viðurkenningunni sem leikskólinn fékk.

Katrín útskýrði fyrir nemendum hvað myndin á fánanum stendur fyrir og lét þau leika eftir myndunum. Gunnsteinn R. Ómarsson bæjarstjóri, Jón Páll Kristófersson formaður fræðslunefndar, Jón H. Sigurmundsson starfandi grunnskólastjóri og Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður voru viðstaddir ásamt öllum nemendum og kennurum leikskólans. Nemendur sungu Sól, sól skín á mig á meðan Svala Ósk flaggaði fánanum.