Eftir frábæra fyrri útgáfutónleika Tóna og trix í Þorlákskirkju á sunnudaginn er nú komið að þeim seinni í Gamla bíói í Reykjavík í kvöld.
Þeir sem ekki komust á tónleikana í Þorlákshöfn ættu ekki að láta þessa frábæru skemmtun framhjá sér fara.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og er enn hægt að næla sér í miða á Miði.is og á Bókasafninu í Þorlákshöfn.