Guðrún Jóhannsdóttir nýr skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn tók við lyklavöldum að skólanum úr hendi Guðna Péturssonar bæjarritara sveitarfélagsins í dag en hún hefur verið ráðin frá og með 1. ágúst s.l.
Guðrún er ættuð frá Eyrarbakka og hefur starfað sem deildarstjóri yngri deildar og forstöðumaður skólavistunar í Vallaskóla á Selfossi síðustu ár.
Bæjarstjórn Ölfuss starfsmenn sveitarfélagsins svo og íbúar Þorlákshafnar bjóða hana hjartanlega velkomna til starfa og hlakka til samstarfs við hana við frekari uppbyggingu og þróun skólastarfs við Grunnskólann í Þorlákshöfn.