Þá er komið að úrslitastund hjá Júlí Heiðari, Þórdísi Brynju og Guðmundi Snorra en úrslit Söngvakeppninnar fara fram í Laugardalshöllinni í kvöld.
Hópurinn mun flytja enska útgáfu af laginu Spring yfir heiminn en lagið heitir nú Ready to Break Free.
Sex atriði syngja til úrslita í kvöld og mun sigurvegarinn keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision í Stokkhhólmi í maí næstkomandi.
Keppnin hefst kl. 20 og minnum við auðvitað á kosninganúmer Júlís og félaga sem er 900-9904.