Þessa frábæru mynd tók starfsmaður Hafnarsjóðs Þorlákshafnar í morgun þegar Herjólfur kom til Þorlákshafnar í 110-unda sinn á þessu ári.
Eins og glögglega má sjá þá mynda bílför í snjónum á bryggjunni tvö hjörtu.
Lesa má út úr myndinni að Þorlákshöfn taki ávallt hjartanlega vel á móti Herjólfi.