Ráðherra veitir Grunnskólanum í Þorlákshöfn viðurkenningu

grunnskolinn-vidurkenning-sigrun-umhverfisradherra-4Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra kom í heimsókn í Grunnskólann í Þorlákshöfn í morgun og kynnti sér flokkunarmál í skólanum ásamt sérstöku verkefni til að minnka matarsóun.

Nemendur í umhverfisnefnd skólans héldu fyrirlestur um umhverfismál skólans. Starfsmenn og nemendur skólans hafa náð að minnka matarsóun um helming á einu ári.

Eftir fyrirlesturinn afhenti umhverfis- og auðlindaráðherra skólanum viðurkenningu fyrir góðan árangur í baráttunni gegn matarsóun.

Sigrún, umhverfis- og auðlindaráðherra var einnig viðstödd þegar Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss, Árni Bragason, landgræðslustjóri Landgræðslu Ríkisins og Aðalsteinn Sigurgeirsson, staðgengill skógræktarstjóra Skógræktarinnar undirrituðu samning um uppgræðslu Þorláksskóga í Ölfusi.