Nýtt vöru­hús SS í Þor­láks­höfn

Ljósmynd: SS
Ljósmynd: SS

Sláturfélag Suðurlands hefur tekið í notkun nýtt vöruhús í Þorlákshöfn og eru vöruhús SS Þorlákshöfn því orðin rúmlega 3.500 fm. að stærð og athafnasvæði þess um 9.500 fm.

Í tilkynningu sem félagið sendi frá sér þá mun þessi nýja bygging og þetta mikla athafnasvæði tryggja búvörudeild félagsins gott rými til að vaxtar á komandi árum

Einungis eru níu ár síðan SS keypti 511 fm. vöruhús á hafnarsvæðinu í Þorlákshöfn ásamt 5.557 fm. lóð á sama tíma gerði félagið „samkomulag við Sveitarfélagið Ölfus um úthlutun á viðbótar lóð að Hafnarskeiði 10a við hlið lóðarinnar. Nýtt deiliskipulag var síðan samþykkt í febrúar 2013 þar sem lóðirnar voru sameinaðar. Athafnasvæðið er nú tæpir 9.500 fermetrar sem tryggir búvörudeild félagsins gott rými til vaxtar á komandi árum.

Undir lok árs 2013 hófust síðan framkvæmdir við 1. áfanga með byggingu á 1.500 fermetra vöruhúsi. Vöruhúsið var tekið í notkun haustið 2014 og hefur reynst í alla staði vel. Lokaáfangi uppbyggingar á vöruhúsum í Þorlákshöfn lauk síðan með byggingu á öðru 1.500 fermetra vöruhúsi í október 2016 en framkvæmdir hófust í ársbyrjun. Samtals eru því vöruhús SS í Þorlákshöfn rúmlega 3.500 fermetrar að stærð.“

Í tilkynningu félagsins kemur fram að aðstaðan í Þorlákshöfn sé SS mjög mikilvæg vegna uppbyggingar við sölu á Yara áburði en árlega fara um 10.000 tonn af áburði í gegnum aðstöðu félagsins í Þorlákshöfn.

„Með nýju vöruhúsi er lokið uppbyggingu félagsins í Þorlákshöfn. Nýtt vöruhús gefur möguleika til kaupa á áburði á þeim tíma sem innkaupsverð er hvað hagkvæmast en það og varðveisla á gæðum áburðarins frá verksmiðju til bónda eru veigamikil atriði til að tryggja bændum gæða áburð frá Yara með hagkvæmum hætti.“

Í tilefni af því að nýja vöruhúsið sé komið í notkun mun SS verða með opið hús þann 3. nóvember frá kl. 16:00-19:00 að Hafnarskeiði 12 í Þorlákshöfn.